Sælkerinn
 

Kúfskels og blómkáls dansiball

Fyrir 4


erfiðleikastig 7 af 10
undirbúningstími : 40 min
eldun: 25 min

 

blómkál 500 gr
kúfskel 320 gr
möndlur 60 gr
súrur 50 gr
steinselja 30 gr
graslaukur 30 gr
mjólk, smjör, rjómi, repjuolía og gott edik eftir þörfum


1: takið blómkálið og skiptið því í 3 hluta, takið tvo hluta og skerið í litla þægilega bita og setjið í skál, úr því gerum við blómkáls og kúfskelssúpu, takið síðan þann hluta sem eftir stendur og vinnið í matvinnsluvél þangað til þið hafið náð blómkálinu í lítil korn ekki ósvipuð cous-cousi.


2. takið kúfskelina og skerið í minni bita og geymið til hliðar, útvegið ykkur stóran pott og setjið yfir hita, þegar hann hefur náð góðum hita þá skuluð þið setja smá steikingarolíu í pottinn og skellið blómkálinu, svitið í 2 mínútur án þess að blómkálið brúnist síðan skuluð þið skella eins og 800 gr af mjólk yfir blómkálið og lækka hitann


3. um leið og mjólkin nær suðu skuluð þið mauka blómkálið í þar til gerðu apparati eins og blandara, út í blandarann fer síðan eins og 200 gr af kúfskel og vinnst hún saman við. að því loknu skellið smá rjóma, ediki og jafnvel smá smjörklípu í súpuna til að gera hana aðeins nautnalegri.


4. takið allar kryddjurtir og skerið fínt, takið möndlurnar og steikið upp úr freyðandi smjöri, passið að hafa nóg af smjöri til að möndlurnar fái eins mikið bragð og hægt er, síðan er smjörið hvort eð er allt sigtað í burt svona rétt til að lina samviskuna. takið kryddjurtir, möndlur og afgangs kúfskel og blandið saman við cous-cousið, kryddið til með vel af sítrus bragðbættri lehnsgaard  repjuolíu frá Bornholm og þegar ég segi vel af henni, þá á ég við vel af henni, salti og góðu ediki.


5. í potti skuliuð þið velgja upp á cous-cousinu, í öðrum potti skuluð þið hafa súpuna vel heita. síðan skuluð þið hafa fjóra djúpa diska með skál með tiltörulega stuttann radíus, í skálina fer cous-cousið alveg við einn kanntinn og síðan er súpunni hellt varlega í skálina sjálfa þannig að cous-cousið fari ekki á of mikla hreyfingu og að það sjáist í það. síðan er dreift smá af sítrus bragðbættri lehnsgaard repjuolíu yfir súpuna til skrauts og tekið hraustlega til matar síns.

 
< Fyrri   Næsti >
 
 


 
-