|
Ofnbökuð panga með kartöflum, Basil og piparost |
|
Uppskrift fyrir 4
1 laukur saxaður
2 pakkar pangaflök
Sítrónu olía Lehnsgaard
15 stk kartöflusmælki (skorið í helminga)
1 pakki ferskur basil (skorinn í litla bita)
¼ líter Rjómi
Smá smjör/líki
Salt og pipar
1pk piparostur (rifinn)
Laukur steiktur í smjöri á pönnu í 3 mínutur.
Kartöflusmælki skorið í tvennt og sett í pönnuna með lauknum og steikt þar til það byrjar að brúnast, þá er smátt skornum basil og rjóma bætt útí og látið sjóða í 2 mínutur, þetta er sett í eldfast form.
Pangan er lögð yfir þetta og pensluð með sítrónuolíu, krydduð með salti og pipar.
Piparosti er stráð yfir og þetta er bakað á blæstri í 15-20 min á 160°c.
|