Sælkerinn
 

Pönnusteikt Panga með Engifer og hvítlauk

Uppskrift fyrir 4

2 pakkar Panga flök
1 tsk ferskur engifer (skorinn í litla bita)
2 hvítlaukgeirar (smátt skornir)
Hrísgrjóna edik
Sykur
Soyja sósa
hveiti
1 paprika (skorin í bita)
Hrísgrjón
Sesam olía 

Hrísgrjón og vatn sett í pott, hlutföllin 1 hluti grjón 2 hlutar vatn, smá salt látið sjóða þangað til grjónin eru mjúk.
Engifer og hvítlaukur og paprika er steiktur létt á miðlungshita á pönnu í olíu,
Pangan er pennsluð með hrísgrjónaediki og sesamolíu, stráð á hana smá salt og hveiti, hún er sett á pönnuna með engifernum og hvítlauknum, þetta er steikt í 2-3 mínutur á hvorri hlið, svo er fiskurinn tekinn af pönnunni og settur í ofn sem er 100°c undir-yfir í 4-6 minutur(ekki blástur), tvær matskeiðar edik og ein matskeið soya sett á pönnuna og látið sjóða bætt við 1-3 tsk sykri til að jafna út edik bragðið og smá vatni.

 
< Fyrri   Næsti >
 
 


 
-