|
Steiktir smokkfiskhringir með ítölskum blæ. |
|
Uppskrift:
250 gr smokkfiskhringir
1 stk hvítlauksgeiri
1 lítil dós niðursoðnir tómatar
¼ stk laukur
½ búnt steinselja
1 klípa smjör
2 msk olía
salt og pipar eftir smekk
Aðferð:
Hvítlaukur, laukur og steinselja er saxað niður og tómatdósin er opnuð. Olía er hituð upp á pönnu og smokkfiskhringirnir eru steiktir á annari hliðinni í eina mín. Á meðan þá er laukurinn settur ofan í og smokkfisknum snúið við og steikt í eina mín. Tómatarnir og steinseljan sett í og þetta látið sjóða í 2 mín. Þá er ein klípa afsmjöri sett og þetta hrært vel saman og sósan smökkuð til með salt og pipar.
|