Sælkerinn
 

Tígrisrækja lítil
Tígrisrækju salat ostur, bacon, doritos og sæt dressing (hentugt í forrétt eða hlaðborð)

Uppskrift


Tígrisrækja
8 stk tígrisrækja

Dressing á salat
200 ml. sýrður rjómi
50 ml. hunang
100 ml. appelsínusafi
1 stk sítróna
1 msk sykur
salt (lítið)
8 stk. myntulauf

Ferskt salat
½ iceberg
½ höfðingi
200 gr Doritos
lítill poki furuhnetur
1 bréf bacon
salt og pipar


Aðferð
Tígrisrækjunar er steiktar á pönnu í c.a. 4 mínutur og smakkaðar til með salt og pipar.

Dressing. Sýrða rjómanum, hunanginu og appelsínusafanum er blandað saman í skál, sítrónusafi kreistur útí, svo er sykri og smá salti bætt útí og fínt saxaðri myntu, hrært vel saman

Ferskt salat. Icebergið er skorið niður, höfðinginn er rifin niður í litla bita, kremið svo doritosið og blandið saman. furuhnetunum er svo bætt útí. Baconið er skorið niður í litla bita og steikt á pönnu síðan er það kælt og blandað útí salatið ásamt salt og pipar

 
< Fyrri   Næsti >
 
 


 
-